"Gott skap er grunnurinn að yndislegum persónuleika þínum."
3ji febrúar er mættur á svæðið - síðustu vikur hef ég ekki gefið mér tíma í að anda held ég!
- miklar breytingar í vinnu - mikið frost - hestaskítsmokstur - og almenn kaffidrykkja í Jötnaborgunum....
- smellti mér á Skagann eina helgina - var þar í góðu yfirlæti hjá Dúnu og Hafsteini, í mat og drykk og jú eins og oft áður þá var tekið í spil.
- þann 1 febrúar þá eignaðist ég nýjan yfirmann, deildin mín að smella yfir á fyrirtækjasvið og verða búferlaflutingar í apríl... þannig að nýr yfirmaður - nýtt húsnæði ALLT að gerast!
- Skrípaleikurinn í borgarstjórn er eitthvað sem er vert að minnast á! - mér hefur liðið eins og apa í Sirkus! - gjörsamlega eins og heilalausu kvikindi sem að verður að sitja og standa eins og sirkusstjórinn segir til um!
- Sóley skvísa er að flytja til útlanda, nánar til tekið til UK - þannig að það er eins gott að fara að safna..... ef maður ætlar að reyna að heimsækja hana á næstu árum!
- Smellti mér á ball í gær, dansaði að vísu ekkert, en spjallaði þeim mun meira við sveitunga og aðra sem hafa verið og eru fylgifiskar sunnanverðra Vestfjarða.... ótrúlega gaman að hitta þarna gamla og góða vini
- aldrei að vita nema að maður skelli sér bara á næsta blót hjá Brottfluttum.
- næstu helgi verður varið í sveitasælunni vestur á Barðaströnd, Þorrablót og fjör!

until next time!